Spil fyrir alla fjölskylduna
Spil fyrir alla fjölskylduna
Spil fyrir alla fjölskylduna
Spil fyrir alla fjölskylduna
Vantar þig hugmynd að skemmtilegu spili fyrir jólin? Hér eru nokkur spil úr úrvali A4 sem gætu slegið í gegn við spilaborðið..
Safnaðu fjölskyldunni saman og njóttu skemmtilegrar spilastundar.
Fullkomin spil fyrir vinahópinn, jólaboðið og áramótapartýið.
Spil sem sameina leik, gleði og skemmtilega samveru.
Kynning
That´s Not a Hat
Vörukynning
That´s Not a Hat er einfalt en ótrúlega skemmtilegt minnis- og blekkingarspil sem gengur út að reyna að muna eftir því hvaða gjafir búið er að gefa og reyna að blekkja hina leikmennina þegar hægt er. Enginn getur gengið út frá því að standa uppi sem sigurvegari en eitt er víst; það verður mikið hlegið!
Fjársjóðsleit í völundarhúsi
Vörukynning
Labyrinth frá Ravensburger er klassískt fjölskylduspil, frábær þrautaleikur, spennandi en umfram allt ótrúlega skemmtilegt! Leikmenn fara í gegnum völundarhús sem tekur sífelldum breytingum og safna dýrgripum um leið og þeir reyna að komast aftur á byrjunarreit.
Funny Bunny
Vörukynning
Funny Bunny er líflegt og skemmtilegt borðspil fyrir fjögurra ára og eldri þar sem kanínur eru í kapphlaupi. Sú kanína sem fyrst kemst upp á topp á hæðinni vinnur. Það þarf þó að fara varlega því kanínurnar geta horfið! My First Funny Bunny er skemmtileg útgáfa af spilinu, ætluð átján mánaða og eldri.
Klifrað upp í kökuturninn
Vörukynning
UP Cake er einfalt en ótrúlega skemmtilegt spil fyrir 8 ára og eldri þar sem leikmenn keppast um að ná fyrstir upp á topp á glæsilegum kökuturni. Þetta hljómar sannarlega einfalt en það þarf bæði heppni og hugrekki í þessu kapphlaupi.