UP Cake er einfalt en ótrúlega skemmtilegt spil þar sem leikmenn keppast um að ná fyrstir upp á topp á glæsilegum kökuturni. Þetta hljómar sannarlega einfalt en það þarf bæði heppni og hugrekki í þessu kapphlaupi.
Spilið er fyrirferðarlítið og einfalt í uppsetningu, notaðir eru fimm teningar og lítil spjöld, svo það er tilvalið að taka það með til dæmis í bústaðinn eða á spilakvöld í skólanum.
Fyrir 8 ára og eldri
Fjöldi leikmanna: 2-4
Spilatími: 15-20 mínútur
Hönnuðir: Klaus-Jürgen Wrede, Ralf zur Linde, Felix Wermke
Útgefandi: Piatnik