Fyrirtækjaþjónusta A4 þjónustar fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum og veitir faglega ráðgjöf varðandi skrifstofu og rekstrarvörur. Hjá okkur starfa sérfræðingar með djúpa þekkingu á vöruframboði okkar sem leiðbeina þér varðandi lausnir sem sniðnar eru að þínu fyrirtæki. Fyrirtæki í föstum viðskiptum njóta jafnframt aukins ávinnings í formi afsláttarkjara sem ráðast af umsvifum viðskipta, auk þess sem þau fá upplýsingar um sértilboð í hverjum mánuði.
Fyrirtækjaþjónusta A4 er þægilegasta leiðin til að tryggja að fyrirtækinu þínu vanti aldrei skrifstofuvörur. Þú pantar í vefverslun okkar eða hefur samband við söluráðgjafa. Við sjáum um að afgreiða og afhenda vörurnar til þín og þú sparar bæði tíma og fyrirhöfn.
Þú getur haft samband við söluráðgjafa í síma 580 0020 eða með tölvupósti á netfangið sala(hjá)a4.is
Fréttir
Sharpie er eitt þekktasta vörumerki heims þegar kemur að skriffærum og merkipennum. Frá því að fyrsti Sharpie penninn leit dagsins ljós árið 1964, hefur merkið orðið samnefnara fyrir varanleika, nákvæmni og tjáningu. Hvort sem þú ert að merkja útivistarbúnaðinn, hanna listaverk eða skrifa á kaffibollann, þá er Sharpie tækið sem bregst aldrei.
Vörumerki
Parker hefur í meira en 130 ár verið eitt virtasta vörumerki heims þegar kemur að ritföngum. Með áherslu á nákvæmni, nýsköpun og klassíska hönnun sameinar Parker glæsileika og áreiðanleika í hverjum penna. Hvort sem um er að ræða daglega notkun eða sérstök tilefni, standa Parker pennar fyrir gæði sem endast og skrifupplifun sem skiptir máli.
með Cartonic 3D púsli
Upplifðu töfrana með umhverfisvænum Cartonic 3D pappapúslum. Frábært föndur fyrir alla fjölskylduna, snjöll gjafahugmynd og fallegur skrautmunur. Skoðaðu úrvalið í A4!
Vefverslun A4 er einföld og þægileg leið til að versla skrifstofuvörur fyrir þitt fyrirtæki þegar þér hentar. Kostir þess að versla í vefverslun eru fjölmargir, meðal annars:
Pantanir til fyrirtækja á höfuðborgarsvæðisins eru keyrðar út með A4 bíl en Pósturinn sér um aðra dreifingu. Sendingakostnaður er 2.990 kr. Ef upphæð á pöntun fer yfir 25.000 kr. fellur sendingakostnaður niður og sætur glaðningur fylgir með.*
*Gildir ekki um húsgögn.