Með því að nota OWA dufthylkin getur fyrirtækið þitt sparað að meðaltali allt að 30% á ári. Auk þess leggur það lóð á vogarskálarnar í umhverfisvernd með því að nota OWA og sýnir fram á mikilvægi þess að gera eitthvað í málunum og sýna gott fordæmi.
OWA endurframleiðir dufthylki og tryggir að þau séu endurunnin á réttan hátt sem hefur minni áhrif á umhverfið. Notuðum hylkjum er safnað saman og þau fá framhaldslíf, annaðhvort sem endurframleidd dufthylki eða nýjar vörur sem búnar eru til úr þeim íhlutum sem ekki var hægt að nýta í hylki. Það er ódýrara að endurvinna dufthylki heldur en að búa til nýtt frá grunni sem kallar á minni orku og hráefnin eru þegar til staðar.
Með OWA ertu bæði að fá lægsta mögulega framleiðslukostnað og að hugsa um umhverfið. Vertu hluti af hringrásarhagkerfinu og veldu OWA!