Pennasett India Ink 5 stk. með 2 oddum Flowers
FAB162007
Lýsing
Blekteikningar hafa lengi tíðkast í listasögunni enda gefa þær listamanninum mikla möguleika við sköpunina og nýtast á margan hátt í ýmsum teikniaðferðum. Hér hefur Faber-Castell sameinað alla kosti listamannableks með þessum nútímapennum sem auðvelt er að nota og henta fullkomlega í skissur, teikningar, útlitsteikningar, tískuhönnun, myndskreytingar og fleira. Á hverjum penna eru tveir oddar; annar grennri, 0,8 sem er frábær fyrir nákvæmnisatriði eins og t.d. útlínur, og hinn breiðari og mýkri, sem gefur burstaáferð og hentar t.d. vel í að lita fyrir innan útlínurnar eða til að teikna og lita eins og sköpunargleðin segir til um.
- 5 litir: Flowers, blóm
- 5 pennar, hver penni með 2 oddum
- Á öðrum enda hvers penna: Mjúkur og sveigjanlegur oddur með burstaáferð
- Á hinum enda hvers penna: Grannur oddur, 0,8, fyrir nákvæmar teikningar og útlínur
- Vatnsblandað blek, blæðir ekki í gegn
- Blekið hefur mikla mótstöðu gegn ljósi
- Framleiðandi: Faber-Castell
Eiginleikar