Handfarangurstaska StackD 55cm | A4.is

Handfarangurstaska StackD 55cm

SDKF180005

Samsonite

Falleg og stílhrein ferðataska með harðri skel úr 100% pólýkarbónati. Taskan er því ekki bara falleg fyrir augað heldur einnig sterkbyggð og gerð til að endast. Hún er auk þess stækkanleg sem gefur þér möguleika á meira plássi fyrir farangurinn þegar þörf krefur. Gott er að kynna sér leyfilega stærð á handfarangri hjá viðkomandi flugfélagi.


  • Litur: Rose
  • Stærð: 55 x 40 x 23 cm
  • Tekur: 39 lítra / 46 lítra eftir stækkun
  • Þyngd: 3,1 kíló
  • 4 hjól
  • TSA lás
  • Merkispjald
  • Útdraganlegt handfang
  • Ólar að innanverðu í neðra hólfinu sem halda farangrinum á sínum stað
  • Skilrúm með rennilásum í efra hólfi
  • Hólf með rennilás framan á töskunni
  • Hólf fyrir fartölvu 15,6"
  • Efni: 100% pólýkarbónat
  • USB tengi
  • 5 ára framleiðsluábyrgð


Framleiðandi: Samsonite