Retreev SMART límmiðar - A4 frétt | A4.is

SMART límmiðar á það sem þú vilt ekki týna fyrir fullt og allt

Reetrev SMART límmiðarnir láta þig vita í tölvupósti og smáskilaboðum um leið og týndi hluturinn þinn er kominn í leitirnar. 

Á hverjum límmiða er QR-kóði sem þú skannar og setur síðan inn upplýsingar um þig sem eru dulkóðaðar og öruggar. Ef hluturinn týnist er auðvelt fyrir þann sem hann finnur að skanna QR-kóðann á límmiðanum; þú færð þá strax tilkynningu um að hluturinn sé fundinn og hvar þú getir nálgast hann.

Aftan á límmiðunum er sterkt lím svo þeir tolla vel og hægt er að líma þá til dæmis á fartölvuna, spjaldtölvuna, vegabréfið og símann.

Einfaldara getur það ekki orðið!