Mottumars - A4 | A4.is

Mottumars er runninn upp!

- Leggjum okkar af mörkum -

Mottumars er árlegt átak Krabbameinsfélagsins í baráttunni gegn krabbameinum hjá körlum þar sem farið er í vitundarvakningu um krabbamein hjá körlum og öðrum, um leið og aflað er fjár fyrir mikilvægri starfsemi Krabbameinsfélagsins. Í ár er áhersla lögð á gildi hreyfingar sem forvörn gegn krabbameinum.

Við hjá A4 látum ekki okkar eftir liggja í Mottumars og seljum fallega og vandaða minnisbók í stærð A5 í tilefni átaksins en 20% af söluandvirði bókarinnar renna til Krabbameinsfélagsins. Á síðasta ári söfnuðum við ríflega 900 þúsund krónum í átakinu, sem hefði ekki verið hægt án okkar dyggu og góðu viðskiptavina.

Hægt er að kaupa minnisbókina í netverslun okkar eða næstu A4 verslun. Skrifaðu allt sem þú ekki vilt gleyma í þessa fallegu minnisbók og styrktu gott málefni í leiðinni!