Kluster - einfalt og skemmtilegt | A4.is

Kluster - einfalt og skemmtilegt spil

Kluster - einfalt og skemmtilegt spil

Kluster er skemmtilegt spil sem tekur stuttan tíma að spila og er auðvelt að læra. Það er líka einfalt að setja spilið upp svo það er tilvalið að taka það með sér til dæmis á spilakvöldið, í ferðalagið og partíið.

Leikmenn skipta segulsteinum á milli sín og skiptast svo á að setja einn stein inn á svæði sem er afmarkað með snúru. Sá leikmaður sem fyrstur nær að losa sig við alla steinana sína sigrar. Hljómar án efa einfalt en að ýmsu þarf þó að huga.

ATH. Í spilinu eru mjög sterkir seglar og það þarf að gæta vel að því að börn gleypi þá ekki. Einnig þarf að gæta þess að halda seglunum frá raftækjum og lækningatækjum á borð við gangráða.

Leikmenn skipta segulsteinum á milli sín og skiptast svo á að setja einn stein inn á svæði sem búið er að afmarka með snúru. Það reynir á skipulags- og sköpunargáfuna þegar verið er að ákveða staðsetningu fyrir steininn og rétta augnablikið til að leggja hann niður þar sem steinarnir eru með segli og geta dregist hver að öðrum.

Ef það gerist þarf viðkomandi leikmaður að taka steinana til baka og þar með er hann kominn með fleiri steina sem hann þarf að losa sig við. Enginn vill nefnilega fá fleiri steina í sínar hendur því leikurinn snýst um að verða fyrstur til að losa sig við þá alla.

Sá leikmaður sem fyrstur nær að losa sig við alla sína steina sigrar.

Stutt og einfalt

Stutt og einfalt

Fyrir 14 ára og eldri
Fjöldi leikmanna: 1-4
Spilatími: 10-20 mínútur

ATH.
Í spilinu eru mjög sterkir seglar og það þarf að gæta vel að því að börn gleypi þá ekki.
Haldið seglunum frá raftækjum og lækningatækjum á borð við gangráða.