• Fyrir skapandi líf
  • Allar vörur
Scrabble
Hið sívinsæla Scrabble, sem Íslendingar þekkja betur sem Skrafl, er nú komið aftur í endurbættri útgáfu en það hefur verið ófáanlegt um árabil.
Eins og áður snýst spilið um að mynda orð með stafatöflum á leikborði þannig að þau gefi sem flest stig.
Stigakerfið hefur verið endurreiknað og stafatöflurnar eru úr viði en leikurinn er í grunninn sá sami. Nú geta allir stafsetningarsjúklingar og aðrir orðheppnir tekið gleði sína og spilað nýtt og betra Scrabble!

Frábært orðaspil fyrir 2-4 leikmenn, 10 ára og eldri.
Leiktími: 30 mín
Leikmenn: 2-4

Innihald:
• 1 leikborð
• 104 stafatöflur
• 4 stafastandar
• 1 stafaskjóða
• leikreglur

Stærð kassa: 36 x 27 x 4,5 cm
Aldur: 10 og eldri

Framleiðandi: Mattel
Dreifing: Nordic Games