UFO sætispúði með gervileðri og stömu undirlagi | Eromesmarko | A4.is

Nýtt

UFO sætispúði með gervileðri og stömu undirlagi

EROVEFUFO

Eromesmarko

UFO sætispúði frá Eromesmarko

Léttur og slitsterkur sætispúði fyrir leik- og grunnskóla sem hjálpar til við að skapa ró og skipulag í kennslurýminu. UFO er auðveldur í þrifum, með stömum botni og fæst í 10 litum.

UFO sætispúðinn hjálpar til við að skapa ró og skipulag í leik- og kennslurými. Púðinn gefur leik- og grunnskólabörnum skýran, sjónrænan stað til að miða við og hentar því vel fyrir fjölbreytt hópastarf, samverustundir og kennslu.

UFO er klæddur slitsterku gervileðri sem er þægilegt viðkomu og auðvelt að þrífa og halda hreinu. Púðinn er léttur og með handhægri lykkju sem auðveldar börnum og starfsfólki að bera hann eða hengja upp þegar hann er ekki í notkun.

Á neðri hliðinni er stamt efni sem heldur púðanum stöðugum á gólfinu og dregur úr því að hann renni til við notkun.

UFO fæst í 10 litum, sem gerir auðvelt að nota liti til að skipuleggja hópa eða lífga upp á kennslurýmið..

Áklæði: Vyva Fabrics Silverguard

UFO geymsluvagn frá Eromesmarko

Fyrir snyrtilega og einfalda geymslu er einnig fáanlegur sérstakur UFO Trolley geymsluvagn.

UFO geymsluvagninn er sérstaklega hannaður fyrir einfalda og snyrtilega geymslu á UFO sætispúðum. Vagninn rúmar allt að 20 UFO sætispúða og fjögur snúningshjól gera auðvelt að færa hann á milli rýma.

Tæknilegar upplýsingar

  • Plata að ofan og neðan úr 18 mm krossviði
  • Yfirborð krossviðs: Fjord Beech HPL
  • Grind: Duftlökkuð í Pearl Grey
  • 4 snúningshjól
  • Stærð: Ø 43 × H 92 cm
  • Rúmar allt að 20 UFO sætispúða

 

Eromesmarko er FSC og PEFC vottað fyrirtæki (FSC-A000507)

Eromesmarko er ISO 14001 og ISO 9001 vottað fyrirtæki

Stálið í borðgrind er 100% endurvinnanlegt þökk sé umhverfisvænni lakkhúð sem er leysiefnafrí.

Allir málmhlutar og dufthúðin eru laus við þungmálma, laus við rokgjörn lífræn efnasambönd, laus við leysiefni og uppfylla því að fullu standard EN71-3 þar að lútandi.


Framleiðandi: Eromesmarko

Framleiðsluland: Holland

 

Komdu til okkar í sýningarsalinn í Skeifunni 17 og fáðu nánari upplýsingar eða sendu okkur póst á husgogn@a4.is og við svörum um hæl.

General

Framleiðandi

Eromesmarko

Undirflokkur

Kollar og pullur