Tungutak - Félagsleg málvísindi | A4.is

Tungutak - Félagsleg málvísindi

FOR110978

Tungutak - Félagsleg málvísindi handa framhaldsskólum.

Höfundar: Ásdís Arnalds og Sólveig Einarsdóttir.
Myndir í bókunum eru eftir Hugleik Dagsson.

Lýsing: Námsefnisflokkurinn Tungutak, eftir Ásdísi Arnalds og Sólveigu Einarsdóttur kennara við Kvennaskólann í Reykjavík, er ætlaður nemendum á framhaldsskólastigi.

Í Tungutaki – félagslegum málvísindum er fjallað um máltöku barna, tvítyngi, mállýskur og mál mismunandi hópa, tal- og málmein og ýmislegt er varðar tjáskipti manna.

Mikið er lagt upp úr því að setja efnið fram á skýran og greinargóðan hátt í bókunum. Áhersla er lögð á fjölbreytni og leitast við að gera nemendur meðvitaða og áhugasama um móðurmál sitt. Margvísleg verkefni eru í bókunum sem til þess eru gerð að efla skilning nemenda á efninu og hvetja þá til sjálfstæðrar hugsunar.

Útgefandi: JPV/Forlagið, 2010, 108 bls.