Torf, grjót og burnirót - Sigrún Eldjárn | A4.is

Tilboð  -25%

Torf, grjót og burnirót - Sigrún Eldjárn

FOR353232

Um bókina

Una og Ormur eru í heimsókn hjá afa og ömmu þegar þau reka augun í gamla ljósmynd af íslenskum torfbæ. Afi fræðir þau um þessi gömlu hýbýli þjóðarinnar og í kjölfarið ákveða þau að sumarhúsið sem amma og afi ætla að reisa skuli verða torfbær.

En hvernig á að byggja torfbæ? Sko, ALVÖRU torfbæ?

Torf, grjót og burnirót leiðir lesendur um töfra torfsins og útskýrir hvernig torfbær er reistur, hvernig á að hlaða grjóti, stinga torf og finna burnirót úti í haga til að koma fyrir í vegghleðslunni, bænum til heilla.

Höfundur: Sigrún Eldjárn

Aldur: 6-12 ára

Útgefandi: Mál og menning, 2025