Think 2 skrifborðsstóll, 3DKnit bak, 4D armar, svart Atlantic, svartur kross | A4.is

Think 2 skrifborðsstóll, 3DKnit bak, 4D armar, svart Atlantic, svartur kross

STL465A0300

Þessa vöru getur þú skoðað og prófað í sýningarsal húsgagna í Skeifunni 17.


Think skrifborðsstóll frá Steelcase.

Think er einfaldasta og straumlínulagaðasta útfærslan á skilningi Steelcase, á fólki sem situr - og hvernig það situr yfir daginn.

Lærdómur Steelcase er byggður á rannsóknum og samstarfi við háskóla, þar á meðal Tækniháskólann í Danmörku, Michigan State University og University of Vermont Back Research Center. Við þær vísindarannsóknir bætir Steelcase sínum eigin rannsóknum á vinnustaðnum sem stundaðar hafa verið til margra ára - með fólki sem situr og vinnur í raunumhverfi. Niðurstaðan er stóll sem "hugsar" um notandann enda er nafnið Think byggt á þeirri nálgun að stóllinn fari einstaklega vel með þig við notkun.

Think - fallegur, einfaldur og sjálfbær.

Með sjálfbærni er átt við að hægt er að endurnýta allt að 95% af þyngd stólsins (sjá nánar https://www.steelcase.com/eu-en/products/office-chairs/think/)


Helstu eiginleikar:

3D knitted Mesh bak (með svörtu baki á lager)

Bólstruð seta (svart Atlantic til á lager)

4D armar (hæð-vídd-snúningur-dýpt)

Mjóbaksstuðningur

Hækkanlegur

Dýptarstilling á setu

Sjálfvirk mótstöðustíllingþegar baki er hallað

Innbyggt Liveback system

Think er gerður fyrir notendur allt að 150 kg.


Framleiðandi: Steelcase

Framleiðsluland: Frakkland


Komdu til okkar í sýningarsalinn í Skeifunni 17 og prófaðu vöruna og fáðu nánari upplýsingar eða sendu okkur póst á husgogn@a4.is og við svörum um hæl.