The Times Fiendish Su Doku Book 19 | A4.is

Nýtt

The Times Fiendish Su Doku Book 19

GAB748920

Myndarleg bók með 200 níðþungum sudoku-þrautum úr breska dagblaðinu The Times. Bókin hentar því þeim sem eru orðnir lunknir í að leysa sudoku-þrautir. Lausnir við þrautunum er að finna aftast í bókinni.

Sudoku er vinsæl talnaþraut sem byggist á því að fylla út 9x9 reitaborð þannig að hver röð, hver dálkur og hver 3x3 undirreitur innihaldi tölurnar 1-9 án endurtekninga. Í hluta reitanna eru tölur merktar fyrirfram og nota þarf rökhugsun til að fylla rétt inn í hina reitina. Sudoku er einföld en áhrifarík leið til að æfa hugann og halda honum virkum, bæta minni og einbeitingu og ná slökun. 


  • 256 bls.
  • Útgáfuár: 2026
  • Útgefandi: HarperCollins Publishers