
Tilboð -67%
The Dry e. Jane Harper
GAB142111
Lýsing
Hver myrti í raun Hadler fjölskylduna? Allir halda að Luke Hadler hafi myrt eiginkonu sína og sex ára son og framið svo sjálfsmorð í kjölfarið. Þegar lögreglumaðurinn Aaron Falk snýr aftur til bæjarins þar sem hann ólst upp til að vera viðstaddur jarðarför æskuvinar síns dregst hann inn í rannsókn málsins og neyðist smám saman til að horfast í augu við samfélagið sem hafnaði honum tuttugu árum áður. Falk og Hadler deildu leyndarmáli sem Hadler tók með sér í gröfina en eftir dauða hans verður hættan á því að það komist upp sífellt meiri. Þegar Falk fer svo að rannsaka málið betur koma fleiri leyndarmál úr fortíðinni upp á yfirborðið og hann efast um að æskuvinur hans hafi framið þennan hræðilega glæp eftir allt saman.
- Höfundur: Jane Harper
- Á ensku
- 104 bls.
- Kilja
- Útgáfa: Little, Brown Book Group, 2017