Sudoku Puzzler Boxed Calendar 2025 | A4.is

Sudoku Puzzler Boxed Calendar 2025

GAB844009

Skemmtilegt borðdagatal fyrir árið 2025 með yfir 300 sudoku-þrautum í mismunandi erfiðleikastigum og lausnum. Sudoku er vinsæl talnaþraut sem byggist á því að fylla út 9x9 reitaborð þannig að hver röð, hver dálkur og hver 3x3 undirreitur innihaldi tölurnar 1-9 án endurtekninga. Í hluta reitanna eru tölur merktar fyrirfram og nota þarf rökhugsun til að fylla rétt inn í hina reitina. Sudoku er einföld en áhrifarík leið til að æfa hugann og halda honum virkum, bæta minni og einbeitingu og ná slökun. 


  • Stærð: 13,08 x 3,43 x 14,86 cm
  • Útgáfuár: 2024
  • Útgefandi: Carousel Calendars