
Nýtt
Stærðfræði Upp á punkt útg. 2023
IDN675327
Lýsing
Upp á punkt - Upprifjun grunnþátta í stærðfræði
Ný og endurbætt útgáfa af bókinni Upp á punkt sem ætluð er nemendum sem eru að hefja nám í framhaldsskóla en skortir leikni í stærðfræði.
Við efnisval var tekið mið af námskrám, bæði efstu bekkja grunnskóla og grunnáfanga framhaldsskóla með það að leiðarljósi að brúa bilið þar á milli. Bókin er einnig heppileg til kennslu í 9.–10. bekk grunnskóla og upprifjunaráföngum framhaldsskóla.
Höfundar eru margreyndir kennarar í stærðfræði. Kjartan Heiðberg hefur bæði starfað sem grunnskóla- og framhaldsskólakennari og kenndi m.a. stærðfræði í tæpan áratug við VMA. Gunnar Friðfinnsson bætist nú við sem meðhöfundur en hann hefur einnig áralanga reynslu af stærðfræðikennslu.
Texti bókarinnar er á auðskildu máli og þannig fram settur að nemendur eigi auðvelt með að lesa hann sér til gagns.
Bókin er einnig heppileg fyrir fólk sem vill rifja upp stærðfræði á eigin spy´tur, t.d. áður en lagt er upp í nám að ny´ju eftir hlé.
NÝJUNG!
Í bókinni er mikill fjöldi QR-kóða sem opna myndbönd um efnið og leiðbeina
um lausnaraðferðir.
- Höfundur: Kjartan Heiðberg og Gunnar Friðfinnsson
- Útgáfuár: 2023