Skólataska 17" BP58 Cosmic Soccer | A4.is

Skólataska 17" BP58 Cosmic Soccer

STM5301292

Vandaður og þægileg skólataska með fótboltaþema. Bakpokinn er rúmgóður og vel skipulagður með fjórum hólfum, hliðarvösum og ýmsum praktískum smáatriðum sem gera hann að góðum félaga í skólann, ferðalög og daglega notkun. Bakpokinn er úr vatnsheldu efni og með styrktu, bólstruðu baki og mjúkum stillanlegum axlarólum. Brjóstól hjálpar til við að halda bakpokanum stöðugum og endurskin eykur sýnileika í lélegum birtuskilyrðum.

  • Rúmtak: 22 L
  • Þyngd: 790 g
  • Fjögur rúmgóð hólf
  • Tveir teygjanlegir hliðarvasar fyrir brúsa eða smáhluti
  • Innra hólf og skipulagshólf með lyklakippu
  • Sérstakur snjallsímavasi með mjúku flísfóðri sem verndar skjáinn
  • Úrtak fyrir heyrnartól
  • Vatnshelt efni
  • Rennilása má tryggja með hengilás
  • Styrktur botn með frauðbólstrun og gúmmífótum
  • Bólstrað og vinnuvistfræðilega mótað bak
  • Mjúkar og stillanlegar axlarólar
  • Stillanleg brjóstól
  • Endurskin
  • Handfang að ofan og lykkja til upphengingar
  • Nafnspjald fyrir eiganda

Framleiðandi: St. Majewski