Púsluspil Wasgij? 2 x1000 bita - Garden Party | A4.is

Púsluspil Wasgij? 2 x1000 bita - Garden Party

NG250198

Garðveislan

25 ára afmælisútgáfa af Wasgij og einnig fertugasta Wasgij Original púslið. Myndin sýnir fólk í garðveislu en púslið sýnir hvað það er sem skelfir veislugestina. Þessi viðhafnarútgáfa inniheldur einnig annað 1000 bita púsl með myndinni á kassanum.

Stórskemmtilegt og óhefðbundið 1000 bita púsluspil frá Jumbo. Kassinn sýnir ekki lokaútkomu heldur gefur vísbendingu um hana. Sá sem púslar þarf því að nota ýmindunaraflið til að leysa gátuna. Ögrunin felst í því að lokaútkoman er í raun ekki sú sama og myndin utaná kassanum en sýnir þess í stað sjónarhorn persónanna sem þar eru.

Wasgij púslin eru geysivinsæl um heim allan og skyldueign á heimili metnaðarfullra púslara!

Aldur: 12 ára og eldri
Fjöldi púslbita: 1000 stykki
Stærð: 68 x 49 sm