Púsluspil Wasgij? 1000 bita - Market Meltdown | A4.is

Púsluspil Wasgij? 1000 bita - Market Meltdown

NG5525010

Hollenskir ostar eru gúrmelaði og það hafa skipuleggjendur þessa ostamarkaðar einsett sér að sanna fyrir gestum og gangandi… það gæti ekkert komið upp á, á ostamarkaði utandyra í borg fullri af músum? Eða hvað? Hvað annað gæti ógnað öryggi hinna girnilegu osta?

Stórskemmtilegt og óhefðbundið 1000 bita púsluspil frá Jumbo. Kassinn sýnir ekki lokaútkomu heldur gefur vísbendingu um hana. Sá sem púslar þarf því að nota ýmindunaraflið til að leysa gátuna. Ögrunin felst í því að lokaútkoman er í raun ekki sú sama og myndin utaná kassanum en sýnir þess í stað sjónarhorn persónanna sem þar eru.

Wasgij púslin eru geysivinsæl um heim allan og skyldueign á heimili metnaðarfullra púslara!

Aldur: 12 ára og eldri
Fjöldi púslbita: 1000 stykki
Stærð: 68 x 49 sm