Púsluspil 1000 bitar - Villa Pallavicino | A4.is

Nýtt

Púsluspil 1000 bitar - Villa Pallavicino

RAV12000852

Vandað púsluspil með mynd af hinum fallega og sögulega garði Villa Pallavicino sem staðsettur er við Maggiore-vatn í bænum Stresa á Ítalíu. Garðurinn er m.a. þekktur fyrir sína stórfenglegu náttúrufegurð, dýralíf og óviðjafnanlegt útsýni yfir vatnið og fjöllin í kring. Í garðinum ganga t.d. hirtir, flamingófuglar, páfuglar og alpakadýr frjáls um garðinn. Púsluspilið er hægt að líma niður og hafa sem fallega mynd á vegg eftir samsetningu. Ravensburger var stofnað árið 1883 og hefur æ síðan verið leiðandi í framleiðslu á skemmtilegum og vönduðum púsluspilum fyrir fólk á öllum aldri. Að púsla þjálfar rökhugsun og færni til að leysa vandamál, minnið og einbeitingu. Það er líka frábær leið til að slaka á og gleyma amstri hversdagsins um stund.


  • Fyrir 14 ára og eldri
  • Þema: Beautiful Gardens
  • 1000 bitar
  • Stærð kassa: 34 x 26 x 6 cm
  • Stærð eftir samsetningu: 70 x 50 cm
  • Vottun: FSC-Mix, úr FSC-vottuðu og endurunnu efni úr sjálfbærri skógrækt
  • Framleiðandi: Ravensburger