Poscasett, 8 litir, PC-5M Neutral litir | A4.is

Poscasett, 8 litir, PC-5M Neutral litir

UNI302331053

Uni Posca, vatnsleysanlegur málningarpenni.

Miðlungsoddur - breidd: 1.8-2.5mm 

Sett með 8 neutral litum.

POSCA eru góðir á pappír og pappa, halda lit sínum þó pappírinn sé dökkur

POSCA eru skemmtilegir á steina, leir og steypu.

POSCA má nota á postulín, keramik og gler og er auðvelt að þrífa þá af glansandi sléttu yfirborðinu.

POSCA hentar vel á tré

POSCA getur farið á fjölbreytta málma eins og ál, járn, stál og fleira sem er notað inni eða úti.

POSCA getur farið á fjölbreytt plastefni

Þrífið hlutinn vel áður en skreytt er til að ekki sé húðfita til staðar

Til að gera þá varanlegri þá má baka hlutinn við 160 ° í 45 mínútur og til að hluturinn fái ekki spennu á sig er hann settur í ofninn þegar kveikt er á honum og leyft að kólna með ofninum líka

Hluturinn þolir handþvott í köldu vatni en ekki uppþvottavél

Ekki má skrúbba yfir litina heldur bara að skola og þerra.

POSCA má nota á allan textíl og verður þvottekta þegar búið er að strauja yfir þá á röngunni án gufu til að festa. Gætið þess að þrífa efnið áður en það er skreytt. Þegar nota á litina á fíngerð efni mælum við með að gera útlínur fyrst og mála svo innan í til að komast hjá að litirnir blæði saman.

Má nota POSCA á önnur efni ? Já alveg örugglega, best er að prófa og sjá hvort þeir virki ekki vel.

Framleiðandi: Mitsubishi Uni