Plateau sófar og hægindastólar | A4.is

Plateau sófar og hægindastólar

JHPLATEAU

Plateau frá Johanson Design er sófalína sem samanstendur af sófum, hægindastólum og „sætiseyjum“ ásamt stökum borðum í stíl.
Einingar Plateau virka vel einar og sér en einnig er hægt að raða saman einingum til að skapa kraftmeiri heildarmynd.
Stíllinn er látlaus og einfaldur. Óþarfa smáatriði hafa verið útilokuð til að skilja eftir hönnun sem vekur tilfinningu fyrir ró, í hvaða umhverfi sem er.
Plateau hefur nokkurskonar verandar form. Ósamhverf uppbyggingin í hverju einstöku húsgagni skapar fallega myndræna tjáningu og tilfinningu um að vera næstum í lausu lofti.

„Aðlaðandi og, þrátt fyrir einfaldleikann, stórbrotinn,“ segja hönnuðirnir Böttcher-Kayser.
Bólstruðu hlutunum er haldið á sínum stað með málmgrind, sem skapar áberandi samsetningu í mismunandi hæð.
Plateau er einnig fáanlegur án arma. Í staðinn er hægt að fá lítið borð sem er hentugt fyrir til dæmis kaffibolla eða litla tölvu.
Stöku borðin koma í tveimur stærðum og tveimur hæðum með góðu úrvali af áferð á borðplötu.
Plateau er hægt að nota í ýmsum aðstæðum eins og til dæmis á biðstofum, móttökum, sem sæti fyrir nokkra í sýningarsal eða heimavið.
Nánast endalaust úrval af áklæði og málmgrind fáanleg í hvítum eða svörtum lit.

Framleiðandi: Johanson Design
Ábyrgð: 2 ár gegn framleiðslugöllum

Komdu til okkar í Skeifuna 17 og fáðu nánari upplýsingar eða sendu okkur póst á husgogn@a4.is og við svörum um hæl.