
Partners+
NG496026
Lýsing
Partners Plus er skemmtilegt og spennandi samvinnuspil fyrir sex leikmenn þar sem spilað er í tveimur þriggja manna liðum eða þremur tveggja manna liðum sem vinna að því að koma sínum peðum hringinn og á leiðarenda, líkt og í lúdó. Notuð eru spil í stað teninga til að ná forskoti eða klekkja á andstæðingunum. Liðið sem fyrst kemur öllum peðunum sínum á lokareit sigrar og því er mikilvægt að standa saman og sýna góða samvinnu. Leikreglur á íslensku fylgja.
- Fyrir 7 ára og eldri
- Fjöldi leikmanna: 6
- Leiktími: 45-60 mínútur
- Höfundur: Thomas Bisgard
- Merkingar: Herkænskuspil, frístund, félagsmiðstöð, fjölskylduspil
Eiginleikar