Pappírsföndur - búum til risaeðlur | A4.is

Pappírsföndur - búum til risaeðlur

DJ9680

Djeco

Með þessu skemmtilega föndursetti er hægt að búa til svakalega flottar risaeðlur sem verða svokallaðir sprellikarlar - eða sprellirisaeðlur kannski? Í settinu er allt sem þarf til að búa til sex sprækar risaeðlur.


  • 3 blöð, 20 x 20 cm, með risaeðlupörtunum
  • 27 pinnar til að festa risaeðlupartana saman
  • 6 viðarpinnar til að festa risaeðlurnar á
  • Leiðbeiningar fylgja
  • Fyrir 6 ára og eldri


Sprellikarl er leikfang sem á sér þúsund ára sögu og er sambland af leikbrúðu og dúkkulísu. Hlutar sprellikarls (búkur, haus og útlimir) eru festir saman með snúru eða pinna. Þegar togað er í snúruna eða pinninn hreyfður hreyfist sprellikarlinn.


Framleiðandi: Djeco