Ori sófi 2 manna, borð askur (A2), C Select 66193, innstunga og USB-C | A4.is

Ori sófi 2 manna, borð askur (A2), C Select 66193, innstunga og USB-C

EFGORIS2E2T166193RB

Ori 2. manna sófi

Áklæði: Select

Litur: Blár 66193

Fætur: Svartir

Borð: Hvíttaður askur (A2)

Rafmagnstengi

USB-C hleðsla


ORI skreytir, prýðir, fegrar! Stakir sófar eða sófakerfi sem jafnar út viðmót heimilis og skrifstofu. Með því að sameina form og virkni mætir ORI þörfinni fyrir vel hönnuð og þægileg húsgögn á skrifstofu morgundagsins. Ori er fáanlegur með fylgihlutum eins og rafmagnsinnstungum og borði. Sófi fyrir mismunandi gerðir af verkefnum eins og  t.d. fyrir vinnu þar sem einbeitingar er krafist eða fyrir fundi. Skandinavísk hönnun af bestu gerð!


Fæst sem 2 sæta sófi, 3 sæta sófi, eða sem einingarsófi sem þú raðar saman til að henta þínu umhverfi og því plássi sem er til ráðstöfunar, hvort sem það er U-sófi, snákur, hringur, L-laga, bakíbak eða hvað annað þá ættum við að geta leyst málið.

Sófi og sökkull samanstendur af krossviði, gegnheilum við, spónarplötu og MDF. Fastir plastfætur. Stálfestingar sem tengja sæti og bak. Mótaðir PUR-froðu hlutar. Saumað textíláklæði. Stillanlegir stálfætur með plastbotni sem valkostur. Sófaborð sem valkostur; Lökkuð stálgrind, borðplata úr MDF með spónlögðu yfirborði, lökkuð skákant með fullum radíus. Hægt er að bæta við stökum púða eða púðum.

Heildardýpt: 79 cm.

Setdýpt: 55 cm.

Sethæð: 45 cm.

Heildarhæð: 93 cm.

ORI er með Möbelfakta vottun og er vottaður skv. EN-1335 Level 1.


Framleiðandi: EFG

Ábyrgð: 5 ára ábyrgð gegn framleiðslugöllum


Komdu til okkar í Skeifuna 17 og fáðu nánari upplýsingar eða sendu okkur póst á husgogn@a4.is og við svörum um hæl.