Orðagull með USB lykli | A4.is

Orðagull með USB lykli

TOL714603

Orðagull - Nýtt málörvunarefni sem styrkir vinnsluminni, heyrnræna úrvinnslu, orðaforða og endursögn. Höfundar: Bjartey Sigurðardóttir, talmeinafræðingur og sérkennari, Ásthildur Bj. Snorradóttir, talmeinafræðingur. Teiknari: Búi Kristjánsson. Lýsing: Orðagull er ljósritunarefni með UBS lykli, litprentuðum spjöldum o.fl. Markmið með verkefnunum er að þjálfa nemendur í að: • Hlusta á heyrnræn fyrirmæli og vinna úr þeim. • Skilja og muna það sem sagt er. • Auka orðaforða. • Halda fyrirmælum í vinnsluminni á meðan á framkvæmd stendur. • Kalla úr minni og endursegja. Verkefnum er skipt í tvo þyngdarflokka og fylgja nákvæmar leiðbeiningar um fyrirmæli og fyrirlögn verkefna. Bókinni fylgir UBS lykill með öllum vinnublöðum bókarinnar, ásamt gátlista til að fylgjast með framförum nemandans. Spjöld með sjónrænum vísbendingum fylgja með bókinni til þess að hjálpa nemendum að skipuleggja sig, fá yfirsýn yfir verkið og virkja vitræna starfsemi. Verkefnin henta elstu börnum í leikskóla og börnum á yngsta stigi grunnskóla. Einnig hentar hún eldri nemendum sem glíma við erfiðleika í vinnsluminni og tvítyngdum nemendum á öllum aldri. Útgefandi: Höfundar.