Ohuhu sett með litabók og 48stk af alcohol pennum | A4.is

Nýtt  -25%

Ohuhu sett með litabók og 48stk af alcohol pennum

OHUY308040618

Æðislegt litabókasett frá Ohuhu.

Settið inniheldur 48 stk af Honolulu alcohol tússpennum með tveimur oddum, brush&fine og fallega litabók frá Ohuhu. Settið kemur í renndri og þægilegri möppu.

Tússpennarnir eru hannaðir fyrir mjúka litablöndun og fallega skyggingu. Þeir henta vel fyrir alls kyns myndsköpun, hvort sem unnið er með persónur, manga, teiknimyndastíl eða aðrar listrænar hugmyndir.

Hágæða blekið tryggir jafna og slétta litaáferð án rákamyndunar og auðvelt er að blanda litunum saman til að skapa dýpt og mjúkar litaskiptingar. Hver penni er merktur með sínum lit á lokinu svo auðvelt sé að finna rétta litinn hverju sinni.

Athugið: Best er að geyma pennana liggjandi til að tryggja jafnt flæði bleksins.

Framleiðandi: Ohuhu