






Nýtt -25%
Ohuhu ferðasett með lítilli litabók og 12 brush alcohol litum
OHUY308040622
Lýsing
Fyrirferðarlítið og handhægt ferðasett frá Ohuhu sem hentar vel fyrir skapandi stundir hvar sem er. Settið inniheldur 12 Nalu alcohol tússpennar með mjúkum brush oddi, auk lítillar litabókar með 8 myndum til að lita og 4 auðum síðum fyrir eigin sköpun.
Nalu tússpennarnir eru hannaðir fyrir mjúka litablöndun og fallega skyggingu. Þeir henta vel fyrir alls kyns myndsköpun, hvort sem unnið er með persónur, manga, teiknimyndastíl eða aðrar listrænar hugmyndir. Pennarnir eru nettari og styttri en Ohuhu Honolulu litirnir, sem gerir þá sérstaklega þægilega á ferðinni.
Hágæða blekið tryggir jafna og slétta litaáferð án rákamyndunar og auðvelt er að blanda litunum saman til að skapa dýpt og mjúkar litaskiptingar. Hver penni er merktur með sínum lit á lokinu svo auðvelt sé að finna rétta litinn hverju sinni.
Athugið: Best er að geyma pennana liggjandi til að tryggja jafnt flæði bleksins.
Framleiðandi: Ohuhu