







Nýtt -25%
Ohuhu* CoCo Wyo sett með litabók og Alcohol-based tússlitum 48 litir
OHUY308040662
Lýsing
Láttu litina tala og njóttu notalegrar skapandi stundar með þessu einstaka samstarfi Ohuhu og Coco Wyo. Settið inniheldur fallega litabók með 45 myndum, þar af 40 af vinsælustu teikningum Coco Wyo og 5 nýjum myndum sem voru sérstaklega hannaðar fyrir þetta samstarf.
Síðurnar endurspegla ólíkar stemningar og tilfinningar, hvort sem dagurinn er rólegur, glaður eða krefjandi. Litunin býður upp á kærkomið tækifæri til að slaka á, njóta augnabliksins og gefa sköpunargleðinni lausan tauminn.
Með settinu fylgja 48 vandlega valdir litir sem Coco Wyo teymið hefur samstillt til að skapa fallegar og samræmdar litasamsetningar. Þannig verður auðvelt að ná glæsilegum árangri, hvort sem þú ert byrjandi eða vanur.
Tússpennarnir eru tvíodda og bjóða upp á mikla fjölhæfni. Annars vegar er sveigjanlegur brush oddur sem hentar vel til að fylla stærri svæði og skapa mjúkar strokur, og hins vegar fínn oddur fyrir nákvæm smáatriði og skýrar línur. Hágæða oddarnir eru hannaðir til að endast vel og tryggja þægilega notkun verkefni eftir verkefni.
Fullkomið sett fyrir alla sem vilja slaka á, njóta litunar og skapa falleg verk með samræmdum og vel völdum litum.
Framleiðandi: OHUHU