Of margir apar | A4.is

Of margir apar

SPIGA241ISL

Apinn Primo er farinn að sjá eftir náttfatapartíinu og langar bara að geta sofnað. Hinir aparnir eru því miður ekkert þreyttir. Þú verður því að hjálpa Primo að finna hina apana og losna við þá einn af öðrum. Leikurinn er einfaldur: Hver leikmaður fær sex hurðir (spil) fyrir framan sig. Þegar þú gerir dregur þú spil úr bunkanum og ef þú færð töluspil máttu skipta því út fyrir einni af hurðunum þínum. Þannig að með fimmu finnur þú fimmta spilið í hurðaröðinni hjá þér setur fimmuna þar og dregur spilið, sem er kannski þristur og svo koll af kolli. Fyrstur til að fá spil frá einum upp í sex vinnur umferðina! Þá er gefið aftur nema að sá sem vann fær bara fimm spil núna. Sá sem losnar fyrst við allar hurðirnar vinnur spilið!
Leikmenn: 2-6
Aldur: 6+
Spilatími: 20+ mínútur