


Minnisleikur - samstæðuspil, atvinnugreinar
AKR20407
Lýsing
Þjálfaðu minnið með þessu samstæðuspili þar sem paraðar eru saman starfsstéttir sem unnar eru af konum, körlum og kvárum.
- Samstæðuspil
- 34 stór spjöld, 9 x 9 cm
- Með spilinu er m.a. hægt að þjálfa athygli, einbeitingu og minni ásamt því að auka orðaforða
- Fyrir 3ja ára og eldri
Aðferð, minnisleikur: Spjöldin eru lögð niður, með bakhliðina upp, leikmenn skiptast á að snúa tveimur spjöldum við og ef það eru tvö eins fær viðkomandi leikmaður að halda þeim. Ef ekki finnast tvö eins, er spjöldunum snúið við og þau látin vera á sínum stað. Sá leikmaður sem safnar flestum spjöldum vinnur.
Aðferð, orðaforði: Nefnið störfin sem verið er að vinna á myndunum.
Aðferð, tungumál: Búið til setningar í kringum myndirnar á spjöldunum. T.d. Mig langar að verða lögreglukona þegar ég verð stór.
Framleiðandi: Akro
Eiginleikar