Minnisleikur - samstæðuspil, gamli og nýi tíminn | A4.is

Minnisleikur - samstæðuspil, gamli og nýi tíminn

AKR20406

Þjálfaðu minnið með þessu samstæðuspili þar sem paraðar eru saman flottar myndir með ýmsum hlutum sem tengjast gamla tímanum og þeim nýja.


  • Samstæðuspil
  • 34 stór spjöld, 9 x 9 cm
  • Með spilinu er m.a. hægt að þjálfa athygli, einbeitingu og minni ásamt því að auka orðaforða
  • Fyrir 3ja ára og eldri


Aðferð, minnisleikur: Spjöldin eru lögð niður, með bakhliðina upp, leikmenn skiptast á að snúa tveimur spjöldum við og ef það eru tvö eins fær viðkomandi leikmaður að halda þeim. Ef ekki finnast tvö eins, er spjöldunum snúið við og þau látin vera á sínum stað. Sá leikmaður sem safnar flestum spjöldum vinnur.

Aðferð, orðaforði: Nefnið hlutina á myndunum.

Aðferð, tungumál: Búið til setningar í kringum myndirnar á spjöldunum. T.d. Þegar mamma mín var lítil stelpa var allt í sjónvarpinu svarthvítt en núna er allt í sjónvarpinu í lit.


Framleiðandi: Akro