Lofthreinsitæki WINIX T-500 | A4.is

Nýtt

Lofthreinsitæki WINIX T-500

WI1022022642

WINIX T500 WIFI er öflugt, nett og snjallt lofthreinsitæki sem hjálpar til við að bæta loftgæði á heimilinu. Tækið hreinsar allt að 99,97% af svifögnum úr loftinu og hentar sérstaklega vel í svefnherbergi, stofur, skrifstofur og önnur rými allt að 50 m². Með hreinsigetu upp á 250 m³ á klukkustund fjarlægir WINIX T500 WIFI meðal annars frjókorn, ryk, ofnæmisvalda, örplast, gæludýrahár, myglugró, ólykt og sígarettureyk. Hægt er að stjórna tækinu beint á því eða í gegnum WINIX Smart App, Google Home og Amazon Alexa.

  • Hentar fyrir rými allt að 50 m²
  • Hreinsar allt að 99,97% svifagna úr lofti
  • CADR loftflæði: 250 m³/klst.
  • Fjarlægir frjókorn, ryk, ofnæmisvalda, PM2.5 svifryk, örplast, gæludýrahár, myglu og ólykt
  • 4 þrepa lofthreinsikerfi:
    • Forsía (Pre-filter)
    • Kolefnissía (Carbon Filter)
    • HEPA sía 99,97%
    • PlasmaWave® tækni
  • Snjallskynjarar fylgjast með loftgæðum og stilla hreinsun sjálfkrafa
  • WIFI tenging og fjarstýring í gegnum snjallforrit
  • Styður Google Home og Amazon Alexa
  • Notar WINIX Filter O síukerfið
  • Hljóðlátur og hentugur til notkunar í svefnherbergi

Framleiðandi: Winix