Líf og heilsa
FOR709033
Lýsing
Líf og heilsa.
Höfundar: Else Kari Bjerva, Reidun Haugen, Sigrid Stordal.
Þýðandi: Elísabet Gunnarsdóttir.
Lýsing: Meginviðfangsefni þessarar bókar eru heilbrigði, lífsvenjur og umhverfi, samspil þessara þátta og áhrif þeirra á heilsuna. Í fyrri hlutanum er fjallað um hugtökin heilsa og sjúkdómur og lögð áhersla á hvernig hægt er að varðveita og efla eigin heilsu. Kynntir eru algengir sjúkdómar, áhættuþættir og forvarnir á vegum ýmissa aðila. Sérstaklega er fjallað um forvarnir sem lúta að umhverfinu, slysavarnir og vinnuvernd, forvarnarstarf í þágu barna og baráttu gegn þeirri heilsuvá sem stafar af reykingum og vímuefnanotkun. Í síðari hlutanum er litið á heilbrigði í sögulegu og menningarlegu samhengi. Hugað er að þeim sjúkdómum og meinum sem að okkur steðja og gerð grein fyrir helstu flokkum örvera, smitleiðum sýkla og vörnum gegn sýkingum. Lögð er áhersla á eigin ábyrgð, sem og áhrif ytra og innra umhverfis.
Útgefandi: Forlagið/Mál og menning, 336 bls., 2003.

Eiginleikar