Lesgleraugu Izipizi Office DarkExpressi + 2,5 | A4.is

Nýtt

Lesgleraugu Izipizi Office DarkExpressi + 2,5

IZREA1631701X25

Njóttu lestursins með IZIPIZI #OFFICE lesgleraugum, sem sameina fágaða retro-hönnun, þægindi og vernd fyrir augun. Gleraugun eru með stækkunarlinsum fyrir lestrarþörf ásamt blágeislavörn sem síar 40% af bláfjólubláu ljósi frá skjám og getur hjálpað til við að draga úr augnþreytu, ertingu og höfuðverk. #OFFICE umgjörðin er stór og áberandi (oversize) með mjúkri, ferkantaðri lögun og fíngerðum innblæstri frá áttunda áratugnum. Þunn umgjörðin gefur gleraugunum létt og fágað yfirbragð og skapar góða blöndu af klassískum retro-stíl og nútímalegri hönnun. Létt umgjörðin tryggir jafnframt þægindi við daglega notkun.

  • Oversize lesgleraugu með stórri og fallegri umgjörð
  • Lesgler með styrkleikum frá +1 til +3
  • Blágeislavörn sem síar 40% af bláfjólubláu ljósi frá skjám
  • Létt og þægileg umgjörð fyrir daglega notkun
  • Mjúk, ferköntuð lögun
  • Þunn umgjörð með fáguðu yfirbragði
  • Retro-hönnun með innblæstri frá áttunda áratugnum
  • Stílhrein blanda af klassísku og nútímalegu útliti
  • Mjúkur filtpoki fylgir með
  • Breidd umgjarðar: 147 mm
  • Hæð umgjarðar: 55 mm

Framleiðandi: IZIPIZI

General

Framleiðandi

IZIPIZI

Undirflokkur

Gleraugu

Litur

Brúnn

Litur vöru

Dark Expresso