Leap Plus skrifborðsstóll, bakstuðningur, 4D armar, svart Fame, svartur kross | A4.is

Leap Plus skrifborðsstóll, bakstuðningur, 4D armar, svart Fame, svartur kross

STL46296179AT04BL

Þessa vöru getur þú skoðað og prófað í sýningarsal húsgagna í Skeifunni 17.


Leap Plus er hannaður fyrir notendur allt að 230 kg.


Leap Plus skrifborðsstól frá Steelcase er hágæða skrifborðsstóll sem er vinnuvistfræðilega hannaður fyrir hvaða skrifstofu sem er.

Leap skrifstofustóllinn er með fjölmargar stillingar og veitir fullan stuðning fyrir mismunandi líkamsform og stærðir.

Steelcase stundar öfluga rannsóknarstarfsemi og er Leap með marga vinnuvistfræðilega þætti sem er beinlínis hægt að rekja til þeirra rannsókna. Þessi eiginleikar gera Leap eins öflugan og sveigjanlegan eins og hryggur mannslíkamans er.


Helstu eiginleikar:

Sveigjanlegt bakið tryggir að bakstuðningur er alltaf til staðar

Aðskilin stjórn á efri og neðri hluta baks tryggir stuðning fyrir allar stærðir notenda

Stjórnanleg mótstöðustilling á baki

Mjóbaksstuðningur

Dýptarstilling setu

Stillanlegir 4D armar

Hækkanlegur

Leap Plus stóllinn er með sérstaklega slitþolnu áklæði.


Leap Plus stóllinn er með 18% stærri setu og 12% breiðara baki, þykkari og breiðari sætissessu og háþrýstitjakki auk þess sem þvermál undirstöðu hefur verið aukið til að næta þörfum stórvaxnari notenda.

Leap Plus er hannaður fyrir notendur allt að 230 kg.


Steelcase er leiðandi í ábyrgð. Steelcase Global Warranty = Ábyrgð í sérflokki

12 ára Steelcase ábyrgð á öllum hreyfanlegum hlutum

Lífstíðarábyrgð á sætisskel, ytri bakskel, undirstelli og fóthring

5 ára ábyrgð á áklæði

Framleiðandi: Steelcase

Framleiðsluland: Frakkland


Komdu til okkar í sýningarsalinn í Skeifunni 17 og prófaðu vöruna og fáðu nánari upplýsingar eða sendu okkur póst á husgogn@a4.is og við svörum um hæl.