
Lára missir tönn
FOR227984
Lýsing
Lára hlakkar alltaf til að fara á fimleikaæfingu og finnst svo gaman að hoppa á trampólíninu og gera ýmsar æfingar en í dag á Lára erfitt með að einbeita sér því hún er með lausa tönn. Ætli það sé sárt þegar tönnin dettur loksins úr? Og hvað á eiginlega að gera við barnatennurnar? Hin lífglaða Lára hefur sérlega gaman af því að læra eitthvað nýtt. Banginn Ljónsi fylgir henni hvert fótmál og saman spreyta þau sig á ýmsum verkefnum.
- Höfundur: Birgitta Haukdal
- Innbundin
- 39 bls.
- Útgáfuár: 2023
- Útgefandi: Vaka-Helgafell