Krakkalæti | A4.is

Krakkalæti

EMM000003

Krakkalæti er svakalega skemmtilegt spil fyrir krakka, fjögurra ára og eldri. Hér lýsa leikmenn spjöldum með hljóði og leik en ekki má segja nein orð. Og það sem meira er; það þarf að keppa við tímann í leiðinni.


  • Fyrir 4ra ára og eldri
  • Fjöldi leikmanna: 4-8
  • Spilatími: 30 mínútur
  • Höfundur: Emmsjé Gauti
  • Merki: Krakkaspil, íslensk spil, fjölskylduspil, leikskóli, grunnskóli


AÐFERÐ: Skiptið leikmönnum í lið og setjið svo spilin á borðið í stokk. Liðin skiptast á að gera; annar liðsfélaginn dregur spil en hinn giskar. Nota má hljóð og leika með höfðinu og humma en það má ekki nota orð. Hvert lið fær mínútu til að ná eins mörgum spjöldum og hægt er og það er tilvalið að nota t.d. snjallsíma til að taka tímann. Rétt svar gefur eitt stig en eitt stig er dregið af liðinu í hvert sinn sem leikmaður segir pass. Þegar stokkurinn klárast eru stigin talin saman og það lið sigrar sem stendur uppi með flest stig. Spilið má spila í fleiri útfærslum sem leikmenn ákveða sjálfir en þá þurfa allir að vera sammála um leikreglurnar.