Klack! Barnaspil | A4.is

Klack! Barnaspil

SPISPSS2-27600

Frábært hraða -og athyglisspil fyrir alla frá fjögurra ára aldri. Leikurinn samanstendur af diskum með segli í sem dreift er um borðið. Á hverjum disk eru þrjú form í mismunandi litum. Tveimur teningum er kastað og annar þeirra sýnir fimm form en hinn sýnir fimm liti. Ef teningarnar sýna rauðann og blóm þá keppast allir við að ná diskum með rauðu blómi. Næst kemur upp hvítur og elding: Nú má grípa alla diskana með eldingu, sama hvernig hún er á litin. Ef það kemur upp hvítt á báðum teningum má grípa alla diskana! Diskunum er safnað í turna og í hvert skipti sem þú leggur disk ofan á annan þá heyrist klack! því segullinn festir þá saman! Sá sem nær flestum diskum vinnur!
Spilatími: 10 mínútur
Aldur: 4 ára og eldri
Fjöldi spilara: 2-6