Íslenskir vettlingar | A4.is

Íslenskir vettlingar

FOR224846

Íslenskir Vettlingar

25 nýjar útfærslur á gömlum mynstrum Höfundur: Guðrún Hannele Henttinen

Vettlingarnir í þessari bók eiga sér fyrirmyndir frá 19. og 20. öld sem varðveittar eru á Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi. Þessar nýju útfærslur gera okkur kleift að viðhalda þeirri þjóð¬legu hefð að nota handprjónaða vettlinga og um leið að halda til haga fallegum sígildum mynstrum frá gömlum tíma. Áhersla er lögð á að hafa úrvalið fjölbreytt, bæði í mynsturgerð og prjóntækni, svo að hér geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi.

GUÐRÚN HANNELE HENTTINEN, höfundur bókarinnar, er textílkennari að mennt og hefur kennt prjón í mörg ár.
Útgefandi : Forlagið 2020