Háskólinn í Reykjavík | A4.is

Háskólinn í Reykjavík

Kennararými Háskólans í Reykjavík er glæsilegt, margnota rými þar sem starfsfólk á stund milli stríða í erli dagsins. Þar eru einnig haldnir fundir, fyrirlestrar og aðrar samkomur. Einstakur arkitektúr hússins fær að njóta sín og sérstök áhersla var lögð á þægindi og einfaldleika húsgagnanna. Húsgögnin koma frá EFG og heildarsvipur rýmisins er tryggður með því að velja samskonar áklæði á húsgögn úr mismunandi línum. Allir fætur voru sprautaðir svartir og öll bólstruð húsgögn voru klædd með Canvas áklæði frá Kvadrat í tveimur gráum litum. Útkoman er bæði falleg og praktísk.

Archie stóllinn frá EFG

Archie stóllinn er til í ýmsum útgáfum. Í þessu verkefni var valið að bólstra skelina að fullu. Bakið nýtur sín þannig einstaklega vel þar sem saumurinn að aftan dregur vel fram bogadregið útlit þess. Archie stóllinn er fullkominn fyrir þetta rými og sveigjanlegt bakið gerir það að verkum að þægilegt er að sitja á stólnum, til skemmri eða lengri tíma.

Fyrsta flokks vinnuaðstaða er metnaðarmál hjá HR. Hluti af því er að skapa rými þar sem fólki líður vel þegar það kemur saman. Create línan frá EFG hentar mjög vel í því samhengi. Armalausir bekkir á móti stökum stólum við borðin skapa skemmtilegt jafnvægi og setustofurnar í endunum, með sófum og stólum með arma, eru fullkomar til að slaka á.

Verkefnavinna

Að vinna verkefni í hópum er stór partur af háskólanámi. Þá er gott að geta leitað í rými sem eru aðgengileg en veita á sama tíma næði. FourUs sófarnir bjóða einmitt upp á þetta. Þeir eru þægilegir auk þess sem auðvelt er að þrífa þá. Slíkar hópavinnustöðvar hafa verið settar upp víða á göngum skólans og eru mögulega best nýttu rýmin í húsinu.