Hitster Rock | A4.is

Hitster Rock

FJO510056

Hitster Rock er frábært tónlistarspil sem allir geta spilað; líka þeir sem segjast ekki hafa neitt vit á tónlist! Hér þarf bara að giska á hvort lagið var gefið út á undan eða eftir lögunum sem búið er að raða á tímalínuna hjá viðkomandi leikmanni. Hitster Rock er þriðja útgáfan af þessu skemmtilega tónlistarspili en þær fyrri, Hitster og Smellur, hafa notið mikilla vinsælda. Hægt er að blanda spilunum saman til að gera leikinn enn skemmtilegri og meira spennandi.


  • Fyrir 14 ára og eldri
  • Fjöldi leikmanna: 2-10
  • Spilatími: 30-60 mínútur
  • Einfaldar reglur og það tekur enga stund að stilla spilinu upp
  • Yfir 300 rokkslagarar sem koma stuðinu í gang
  • Hitster-appið er ókeypis í App Store og Google Play 

Nánar um spilið:

Markmiðið er að raða sem flestum lögum á tímalínuna; hver leikmaður fær spjald með QR-kóða öðrum megin sem er skannaður til að spila lag í gegnum Hitster-appið. Leikmaðurinn stillir spjaldinu upp á tímalínuna sína og snýr síðan spilinu við til að sjá rétt ártal. Ef hann setti lagið á réttan stað á tímalínunni fær hann að halda spilinu. Sá vinnur sem er fyrstur til að ná 10 spilum í réttri röð. Svo má auðvitað breyta fyrirkomulaginu að vild, til dæmis þannig að leikmenn verði líka að gista á flytjendur og titla laganna eða nota sérstök Hitster-spil.