Gripz Flex CL nemendastóll, viðarsæti, fótahvíla 1-4, fyrir borð F6 | A4.is

Gripz Flex CL nemendastóll, viðarsæti, fótahvíla 1-4, fyrir borð F6

EROGRIPZFLSPHS

Gripz Flex Cantilever nemendastóll með stillanlegri fóthvílu í hæð 1-4 skv. EN-1729.

Eromesmarko framleiðir skólahúsgögn í samræmi við EN 1729.

Gripz Flex Cantilever stóllinn er nútímalegur nemendastóll og fæst með plastsæti eða viðarsæti.

Sæti stólsins er sérstaklega hannað þannig að virkni stólsins hentar margsvíslegu skólaumhverfi.

Lagið á stólagrind er sérlega hentugt til setja stólinn uppá borð til að auðvelda þrif á gólfi kennslustofunnar.

Til að koma í veg fyrir skemmdir á borðplötu er nauðsynlegt að panta sérstaka púða undir stólinn.

Stóllinn er meðlimur í Gripz fjölskyldunni.

Stóllinn er fáanlegur  í sethæð 50,5 cm. eða G7 skv. EN-1729 og hentar fyrir borð í hæð F6.

Seta er í stærð Medium.

Stóllinn er fáanlegur með viðarsæti í 3 standard litum og 4 sérlitum gegn endurgjaldi.

Hægt er að velja á milli 7 lita á stólafætur.

Stóllinn er staflanlegur í 4 stóla hæð.

 

Stálið í stólagrind er 100% endurvinnanlegt þökk sé umhverfisvænni lakkhúð sem er leysiefnafrí.

Allir málmhlutar og dufthúðin eru laus við þungmálma, laus við rokgjörn lífræn efnasambönd, laus við leysiefni og  uppfylla því að fullu standard EN71-3 þar að lútandi.

Eromesmarko er FSC og PEFC vottað fyrirtæki (FSC-A000507)

Eromesmarko er ISO 14001 og ISO 9001 vottað fyrirtæki

 

Framleiðandi: Eromesmarko

Framleiðsluland: Holland

 

Komdu til okkar í sýningarsalinn í Skeifunni 17 og fáðu nánari upplýsingar eða sendu okkur póst á husgogn@a4.is og við svörum um hæl.