Síma- og spjaldtölvustandur á gólf svartur | A4.is

Síma- og spjaldtölvustandur á gólf svartur

DUR894201

Þessi standur, sem stendur á þrífæti á gólfi, er frábær fyrir símann eða spjaldtölvuna. Það getur verið mikið álag á hnakka og háls þegar litið er niður á skjáinn við áhorf en með því að setja símann eða spjaldtölvuna á standinn og hafa skjáinn þannig í augnhæð er hægt að koma í veg fyrir slíkt álag. Standurinn er líka snilld fyrir alla áhrifavalda, unga sem aldna, þegar verið er að skapa efni fyrir samfélagsmiðla.


  • Litur: Svartur
  • Fyrir snjallsíma og spjaldtölvur frá 4,7" til 13 " og upp í 800 g (að meðtöldum iPhone og iPad)
  • Hægt að stilla hæð í allt að 1,69 m
  • Taska (70 cm) fylgir svo auðvelt er að fara með þrífótinn á milli staða
  • 360° snúningur með stillanlegu sjónarhorni
  • Gúmmíhúðaður stuðningur sem tryggir mikinn stöðugleika og verndar tækið gegn rispum
  • Op fyrir hleðslusnúru svo hægt er að hafa tækið í hleðslu á meðan það er á standinum


Framleiðandi: Durable