GoCabby 16 hleðslu og geymslutaska með sync | A4.is

GoCabby 16 hleðslu og geymslutaska með sync

MON0150

GoCabby 16 hleðslu- og geymslutaska með sync.

Lýsing: Ferðavagn sem geymir, hleður og samstillir (synchronises) allt að 16 spjaldtölvur (með hlífðartöskum eða án) og eina fartölvu. Hann er ætlaður iPad, Android tablets, Kindle Fire, LearnPad, þ.e. fyrir tölvur með USB tengi. Hann er með ferðatöskuhandfangi, tveimur hjólum og fótum til að verja vagninn í láréttri stöðu. Tvö burðarhandföng eru á hvorri hlið. Ferðavagninn er fóðraður að innanverðu með frauði til að vernda enn betur spjaldtölvurnar. Teygjubönd eru einnig til staðar til halda þeim föstum í vögnunum. Sérstök geymsla er fyrir eina fartölvu, hleðslutæki og Apple TV. Á vagninum er stæði fyrir wifi beini (router) ásamt tengingum. Hægt að hlaða ólíkar gerðir spjaldtölva allar í einu og hægt að samstilla (sync) sömu gerðir tölva allar í einu. Í vagninum er loftræsting, þ.e. vifta að innanverðu til að kæla niður tölvurnar á meðan þær eru í hleðslu í lokuðum vagninum. Tvær læsingar eru á honum ofanverðum.

Stærð: B 565 x D 400 x H 795 mm.
- Spjaldtölvurými: B 222.5 x D 32 x H 314.5 mm.
- Rými fyrir spjaldtölvur sem eru í Gripcase eða öðrum álíka stórum hlífðarrömmum: W 265 x D 33.5 x H 315mm.

Framleiðandi: LabCabby