Gler- og postulínspennar 12 stk. í pk. bl. litir | A4.is

Gler- og postulínspennar 12 stk. í pk. bl. litir

PD249202

Pennar með 2ja mm oddi til að nota á gler og postulín, tólf stykki í pakka. Þrífið yfirborð með alkóhóli áður en teiknað er með pennanum og snertið ekki flötinn sem teikna skal á. Hristið pennann vel fyrir notkun og hafið tappann á; þegar litur kemur úr pennanum þegar hann er prófaður á pappír er hann tilbúinn til notkunar. Látið hlutinn standa og þorna í 4 klt. og setjið svo í kaldan bökunarofn. Stillið hitann á 160°C og byrjið að taka tímann þegar ofninn er kominn upp í rétt hitastig. Að 90 mín. liðnum frá því er slökkt á ofninum og hluturinn látinn kólna í opnum ofninum. Blekið þolir þvott í uppþvottavél við 55-60°C en ekki að liggja í vatni. 


  • 12 stk. í pakka
  • Litir: Gulur, appelsínugulur, rauður, bleikur, fjólublár, ljósblár, blár, grænn, brúnn, svartur, silfur og gull
  • 2ja mm oddur
  • Fyrir gler og postulín (ekki kristal eða duralex-gler)
  • Blekið þolir þvott  í uppþvottavél við 55-60°C
  • Geymið pennana í láréttri stöðu, þ.e. látið liggja 


Framleiðandi: Panduro