Gleðileg mjátíð - Brian Pilkington | A4.is

Gleðileg mjátíð - Brian Pilkington

FOR350163

Jólin nálgast og dag nokkurn taka jólasveinarnir eftir því að jólakötturinn virðist vera horfinn! Bræðurnir halda þegar í stað út í hríðarveðrið til að leita hans. Það sem þeir koma með til baka kemur sannarlega á óvart.

Brian Pilkington þekkir jólaköttinn og fjölskylduna sem hýsir hann manna best. Hér dregur hann upp einstaka mynd af jólasveinafjölskyldunni og umtalsverðum viðbótum við hana.

Í bókinni má einnig finna yfirlit yfir alla íslensku jólasveinana og í hvaða röð þeir koma til byggða.