Sirdar Cashmere Merino Silk | A4.is

Sirdar Cashmere Merino Silk

Sirdar Cashmere Merino Silk

Cashmere Merino Silk frá Sirdar er lúxusgarn; blanda af kasmírull, silki og merínóull. Garnið er einstaklega mjúkt og endingargott, hlýtt, með fallegri áferð og náttúrulegri mýkt. Það hentar því frábærlega í ýmiss konar handavinnu, hvort sem verið er að prjóna eða hekla. Það er til dæmis tilvalið í fatnað á borð við ungbarnasett og barnaföt, peysur, jakka, sjöl og trefla. Þau sem kunna að meta vandað garn með lúxusáferð velja Cashmere Merino Silk.

Ráðlögð prjónastærð: 4
Prjónfesta til viðmiðunar: 22 lykkjur x 28 umferðir á prjóna nr. 4 = 10 cm

Samsetning Cashmere Merino Silk

Samsetning Cashmere Merino Silk

75% extra fín merínóull
Hlý, gerir garnið slitsterkt og auðvelt að vinna með

20% silki
Gefur garninu náttúrulegan gljáa og mýkt og styrkir það að auki

5% kasmírull
Gefur garninu meiri mýkt og fallega áferð

Í hvaða verkefni er hægt að nota garnið?

Í hvaða verkefni er hægt að nota garnið?

Peysur og jakka: Þar sem garnið er mjög mjúkt og notalegt viðkomu , hentar það frábærlega í margvíslegan fatnað; til dæmis þykkar og hlýjar peysur, jakka og fatnað sem liggur þétt að húðinni.

Barnavörur: Vegna mýktarinnar og náttúrulegra efna í garninu er það mjög vinsælt í ýmislegt fyrir barnið. Til dæmis teppi, samfellur, sokka, ungbarnasett og húfur.

Sjal og trefla: Silkið gefur fallegan gljáa og merínóullin hlýju, svo Cashmere Merino Silk er tilvalið í sjöl, trefla og aðra fylgihluti.

Húfur og vettlinga: Það er tilvalið að prjóna hlýjar og mjúkar húfur og vettlinga.

Cashmere Merino Silk hentar í raun í hvaða verkefni sem er. Útkoman verður ávallt mjúk, glæsileg og endingargóð.

Litir

Litir

Cashmere Merino Silk kemur í fallegum litum sem henta í hvaða verkefni sem er.